föstudagur, 8. júní 2007

Aðeins rúm vika

Jæja, þá er aðeins rúm vika í að við leggjum í hann. Hvorugt okkar byrjað að pakka, en bæði aðeins byrjað spá og spekúlera hvað þarf að taka með. Góð ráð eru vel þegin!

Við byrjum í Osló og þangað fljúgum við 18. júní. Þaðan er ferðinni heitið til Svíþjóðar og svo er það Danmörkin. Þar á eftir er Þýskaland en hvert við förum þaðan kemur bara í ljós. Við ætlum að hafa þetta svolítið frjálst og leyfa einhverjum áfangastöðum að ráðast bara. Við munum reyna að henda inn einni og einni mynd við tækifæri, aðallega til að sýna Lillu að við séum á lífi! ;)


Þetta verður heljarinn ferðalag og eflaust erfitt, en gaman verður þetta. Það er alveg á hreinu.


Heimkoman er áætluð 23. júlí, eða var það ekki Rúnar?


HDH

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

VVíí frábært að geta fylgst með ykkur;) vona að þið eigið eftir að skemmta ykkur ÚBER vel;) á eftir að sakna þín Hafrún mín;)

Rúnar sagði...

emm jú... það held ég... annars sjáum við bara til ;)

Nafnlaus sagði...

Á eftir að sakna þín fullt fullt fullt... hehe ég mun fylgjast með =)

Nafnlaus sagði...

hehe kann ekkert á þetta.... ég er nafnlaus=) híhí... ógó spúggí eitthvað...