miðvikudagur, 20. júní 2007

Nokkur gullkorn

Við ákváðum að henda inn nokkrum gullkornum sem hafa komið upp enn sem komið er :)

"Mér finnst magnað að það sé hægt að fljúga!"
- Rúnar Skúli um flugið til Osló ;) -

"Djöfull var þessi flott Hafrún!!"
- Rúnar að benda Hafrúnu á flotta gellu! ;) -

Hafrún: "Oj, hvaða fluga er þetta?" Þá svarar Rúnar um hæl: "Þetta er einhver dönsk fluga!"
- Sérstakt þar sem við vorum i Noregi! :) -

"Rúnar, ég er sko að fara deyja!"
- Hafrún ekki að höndla einn rússibanann :) -

"Skiptir einhverju máli hvort það er sodavatn eða ekki?"
- Já, greinilega Hafrún, því korteri seinna sprakk vatnspokinn! -

Rúnar: "Hvað tekur langan tíma að labba upp á lestarstöð?"
Linn: "Bara fimm mínútúr!"
- Tja, meira svona 15 - 20 mínútur, sem gerði það að verkum að lestin fór nærri án okkar! -

Jæja, Köben snemma í fyrramálið þannig að við bjóðum bara góða nótt!

Haf - rún - ar ;)


9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahaha... þið eruð sko allveg milljón!
Góða skemmtun kæru vinir!

Nafnlaus sagði...

æðislegt..virkilega frábært:)

Nafnlaus sagði...

hehehe... það er ekki sanngjarnt að þið fáið að hitta sela á undan mér!!! en þið verðið sko að knúsa hana rækilega frá mér.. haldið áfram að skemmta ykkur;)

Nafnlaus sagði...

Æ elskurnar mínar, það hefur nú aldrei komið neitt gott út úr því að leggjast í ferðalög.
Gullamma

Nafnlaus sagði...

Haha... Gullamman góð :-)
Góða skemmtun, sjáumst kannski í London.

Finnur sagði...

HeHe
Það þarf lítið til að koma ykkur úr jafnvægi :p

Nafnlaus sagði...

HEHEHHE snilld vá hvað það er ábyggilega gaman hjá ykkur;) ohhh hugsaði um að hringja í þig áðan elskan (Hafrún;)) en síðan fattaði ég það að þú værir ekki einu sinni á landinu...væl væl

P.s Loveya;)

selmahauks sagði...

Takk fyrir góða samveru í Köben! Geggjað að fá ykkur!
:*

Nafnlaus sagði...

Rúnar Rúnar Rúnar, hahaha það verður nóg af fallegu kvennfólki fyrir þig í útlöndum, reyndu nú samt að hafa hemil á þér drengur :-D